19.04.2012 11:51

Gleðilegt sumar!

Ræktunarbúið Torfunes óskar ykkur öllum gleðilegs sumars.


21.03.2012 17:39

Stóðhestar

Vorum að setja inn upplýsingar um flesta stóðhestana frá Torfunesi undir linknum Stóðhestar. Þar er hægt að finna hvar þeir verða í sumar og verð fyrir hverja hryssu  :) Kveðja Torfunes

18.03.2012 21:36

Námskeiðið hjá Metta búið

Þá er námskeiðinu hjá snillingnum Metta lokið.
Alls voru þetta 4 helgar en sú fyrsta var 26 nóvember.
Við viljum þakka Metta fyrir alveg frábært námskeið og öllum þeim sem komu á það, einnig viljum við þakka þeim fyrir sem komu á sýnikennslurnar sem voru þessar helgar.

16.03.2012 23:31

Blær frá Torfunesi - vor og sumar 2012

Nú ferð að líða að því að hægt verði að taka á húsnotkun hjá Blæ.
Hægt er að komast á húsnotkun hjá Blæ í Torfunesi Verð á húsnotkun er 50.000 krónur plús vask og daggjald fyrir hryssu er 750 krónur.
Blær mun vera á fyrra gangmáli á Þingeyrum í Húnavatnssýslu, nánari upplýsingar og pantanir veitir Magnús Jósefsson í síma 897-3486 en einnig á netfangið steinnes@centrum.is.
Síðara gangmál mun síðan vera hér í Torfunesi og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á torfunes@gmail.com og einnig í síma 863-9222
Verð á fyrra sem og seinna gangmál er 90.000 með öllu.


Blær og afkvæmi á landsmóti 2011

13.03.2012 17:21

4 helgin með Mette

Jæja nú er komið að 4 og síðustu helginni hjá Mette. Allir sem eru skráðir eiga að mæta klukkan 09:00.

Einnig ætlar Mette að hafa áframhald af sýnikennslunni síðan síðast og hefst hún klukkan 13:00 og stendur yfir í um klkkustund.
Allir velkomnir á sýnikennsluna sem kostar aðeins 1.000 kr

Kv Torfunes


09.03.2012 21:49

Myndir

Smellti inn nokkrum myndum af þeim Húma frá Torfunesi og Mist frá Torfunesi :)

Húmi er stóðhestur á 4 vetri og  knapi á honum er  Helgi Þór , Húmi er fyrsta afkvæmi Myrkvu

Svo er það Mist sem er undan Sveini Hervari og Mánadís, sem Helgi ætlar að mæta með á morgun á Mývatn


 

 

01.03.2012 17:14

Reiðnámskeið fyrir 12 ára og yngri


 Reiðnámsskeið fyrir 12 ára og yngri verður haldið

Í Torfunesi 3.+4. mars n.k. (laugardag og sunnudag)

Krökkunum verður skipt niður í hópa eftir aldri og getu

Ekki fleiri en 5 í hóp, 2 klst í einu, kl.13:00-17:00 báða dagana.

Kennari: Oddný Lára Guðnadóttir

Verð: 4000 kr. fyrir félaga í Þjálfa (6000 kr. annars)

Hægt er að fá leigð reiðtygi og hest: kr.2.500 (takmarkaður fjöldi)

Skráning á netfangið: stadarholl@simnet.is eða

Í síma:  4643707       f. kl. 15:00 föstudaginn 2. mars.

21.02.2012 09:48

Fréttir

Nóg er að gera hér í Torfunesi þessa dagana og mikið þjálfað og tamið.
Um helgina var krakkadagur hjá Þjálfa haldinn í Torfunes og gátu allir sem höfðu áhuga á að fara á hestbak komið til okkar. Einng var í boði að koma með sinn eigin hest og nota aðstöðunar hérna hjá okkur.  Krakkarnir komu flest með eigin reiðtygi og kenndi Oddný Lára þeim að þrifa þau, svo allir fóru heim með vel pússuð og flott reðtygi.
Gaman er svo að segja frá því að Helgi Þór sem sér um tamningju og þjálfun hér smellti sér á ísmót Gnýfara á Ólafsfjarðarvatni og sigraði það á Berg frá Kolsholti 2 og óskum við honum til hamingju með sigurinn :)

10.02.2012 11:16

Prins frá Torfunesi

Prins frá Torfunesi.
Mjög vaxandi foli


Horfa á myndband


10.02.2012 08:49

Myndir

Setti inn nokkrar myndir undir myndaalbúm af þeim Glæðu, Önn Sirkus og Prins


Glæða


Önn frá Ögmundarstöðum IS2006257321

Sirkus frá Torfunes IS2006166204

Prins frá Torfunesi IS2006166202



10.02.2012 08:31

ÖNN

Góðan daginn.


 

Vorum að setja inn myndband af Önn frá Ögmunarstöðum.
Önn frá Ögmundarstöðum Önn er stór og myndarleg klárhryssa í mikilli framför. Hreingeng  og þægileg. Önn er traust og þægileg í umgengni. Viljinn er vaxandi í henni svo hún myndi ekki henta fyrir alveg byrjendur.   Önn er á járnum og í þjálfun núna og hefur t.d verið lánuð á námskeið hjá Mette Moe Mannseth undir 12 stúlku.  Frábært fjölskylduhross og jafnvel keppnishross í barna- og unglingaflokk

01.02.2012 17:09

Námskeið hjá Mette og sýnikennsla

Nú er komið að 3 helginni hjá Metta. Allir sem eru skráðir eiga að mæta klukkan 09:00.

Þeir sem ekki eru skráðir en hafa áhuga á því að koma á sýnikennslu geta mætt klukkan 13:00 og greitt aðeins 1000 krónur fyrir sýnikennsluna.


 

Með kveðju

Torfunes

01.02.2012 15:18

Tamning og þjálfun

Jæja nú er allt komið á fullt hér í Torfunesi og tamningar og þjálfun fer vel af stað.  Húsið er að verða nánast fullt en lengi er pláss fyrir góð hross.

Þau Helgi Þór og Oddný Helga eru búin að koma sér vel fyrir hérna í Torfunesi og farin að þjálfa og temja á fullu. Þau eru með 6 hross í þjálfun og tamningu frá Torfunesi og fljótlega bætast tvær hryssur við sem Helgi ætlar að þjálfa en það eru þær Ástrós  og Bára. Ásamt þessum hrossum eru þau með hross eigin vegum.  Hrossin sem Helgi og Oddný Lára eru með fara vel af stað og  þykja ansi efnileg. Stefnt er með öll þessi hross í sýningar í vor og í keppni í vetur og sumar.  

Baldvin hefur séð þjálfun á nokkrum hrossum sjálfur eins og þeim Sjarm frá Torfunesi  IS2007166204, Gammi frá Torfunesi IS2004166213 og Sirkus frá TorfunesiIS2006166204 og gengur sú þjálfun mjög vel enda allt efnilegt hross.

Einnig hafa nokkur hross verið send annað í þjálfun eins og til þeirra Mette og Gísla, Christina Lund og Árna Björns og Sylvíu

Látum þetta duga í bili en hér fyrir neðan er upptalning á þeim hrossum sem þau Helgi Þór og Oddný Lára eru með frá Torfunesi.

Stefni svo á að koma inn myndum fljótlega

Kveðja Torfunes

 Prins frá Torfunesi IS2006166202

Faðir      Blær frá Torfunesi  

Móðir   Freyja frá Reykjavík

 Mist frá Torfunesi  IS2005266211

Faðir      Sveinn Hvervar frá Þúfu

Móðir   Mánadís frá Torfunesi

Önn frá Ögmundastöðum

 Faðir      Slettir frá Sörlatungu

 Móðir   Tinna frá Ögmundastöðum

Háey frá Torfunesi IS2008266209

 Faðir      Hófur frá Varmalæk

 Móðir   Abbadís frá Torfunesi

 Glæða frá Hryggstekk IS2006276131

 Faðir      Blær frá Torfunesi

 Móðir   Gná frá Bakka

 Húmi frá Torfunesi

 Faðir      Sveinn-Hvervar frá Þúfu

 Móðir   Myrkva frá Torfunesi

10.01.2012 21:22

Allt að fara á fullt

Jæja þá fer allt að fara á fullt hjá okkur hér í Torfunesi og mikið af spennandi hrossum komin á hús.

En helstu fréttirnar þessa dagana hjá okkur eru þær að ákveðið var að fara í samstarf við þau Helga Þór Guðjónsson og Oddnýju Láru Guðnadóttur og bjóðum við þau velkomin í sveitina okkar.

Hér munu þau taka í þjálfun og tamningu en einnig mun vera hægt að leita til þeirra vegna reiðkennslu og ýmsu öðru tengt hestamennsku.

Hér er hægt að skoða heimasíðuna hjá þeim Helga og Oddnýju  www.hestaland.123.is

Kveðja Torfunes :)

09.01.2012 19:07

Önnur námskeiðshelgi að baki


Jæja þá er önnur helgi af fjórum á námskeiðinu hjá Metta búin.

Í þetta skipti var deginum skipt upp þannig að fyrir hádegi fengu allir 20 mín einkakennslu þar sem farið var yfir hvern hest og smellti Mette sér á flesta hestana. Eftir það var tekinn léttur hádegismatur áður en farið var í rúmlega klukkutíma langa sýnikennslu þar sem farið var yfir hvernig hesturinn lærir og fleira. Eftir sýnikennsluna voru svo hóptímar og einkatímar eftir því hvað fólk vildi.

Þessi dagur var langur og skemmtilegur og gátum við ekki betur séð en að allir hefðu farið alsælir heim.

Viljum við þakka þeim sem voru með okkur þennan laugardag fyrir frábæran dag og hlökkum til að sjá sem flesta á næstu námskeiðshelgi.

Myndir eru komnar inn á facebook síðuna okkar og koma hér inn á síðuna fljótlega

Kveðja Torfunes

Flettingar í dag: 91
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 145
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 135326
Samtals gestir: 39213
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:45:12